Þjónusta

Hvað gera augnlæknar?
Megin hlutverk augnlækna er greining og meðhöndlun augnsjúkdóma.
Ef þú hefur í huga að fá sjónmælingu fyrir nýjum gleraugum eða linsum, skal leita til sjóntækjafræðinga í gleraugnaverslun, enda eru þeir sérfræðingar á því sviði.
Börn undir 12 ára, sem grunur er um að þurfi gleraugu, þurfa að koma til augnlæknis. Við stöðina okkar starfa sérfræðingar í barnaugnlækningum.
Ef þú finnur fyrir eftirfarandi einkennum, skaltu leita beint á Bráðamóttöku:
- Ljósglampar í sjónsviðinu, jafnvel þó augun séu lokuð
- Mikið magn af flygsum sem fljóta um í auganu
- Dökk gardína/slæða yfir sjónsviði, byrjar oftast í jaðri en færist svo nær miðju
- Rautt auga með ljósfælni og verk
- Skyndileg blinda
Hversu oft þarf að mæta til augnlæknis?
20-39 ára
5-10 ára fresti
Einstaklingar með gleraugu eða linsur fara þó oftast til sjóntækjafræðings á 1–2 ára fresti til að endurnýja styrk.
40-54 ára
2-4 ára fresti
Um fertugt byrja náttúrulegar breytingar á sjón (aldurstengd fjarsýni) og hætta á gláku (augnþrýstingi) eykst lítillega.
55-64 ára
1-3 ára fresti
Til að fylgjast með sjónhimnubreytingum, gláku og byrjandi skýi á auga (dreri).
65 ára og eldri
1-2 ára fresti
Tíðni augnsjúkdóma eykst verulega með aldrinum og því er ráðlagt að mæta reglulega í eftirlit.
Sjúklingar greindir með gláku, sykursýki, augnbotnahrörnun eða aðra augnsjúkdóma koma í reglegt eftirlit og meðferð í samráði við sinn augnlækni.
Algengar spurningar
Hversu langur er biðtíminn eftir tíma?
Því miður er langur biðtími hjá okkur, 3-13 mánuðir mismunandi eftir læknum.
Ef þú hefur í huga að fá sjónmælingu fyrir nýjum gleraugum eða linsum, skaltu leita til sjóntækjafræðings í gleraugnaverslun.
Ef þú ert sjúklingur hjá okkur með greindan augnsjúkdóm og hefur áhyggjur, skaltu vera í sambandi við okkur í síma 551 8181 eða fylla út form hér á síðunni og lýsa einkennum vel. Við reynum þá að útvega þér viðtal við þinn lækni eða koma þér fyrr að ef læknir metur erindið brátt.
Þarf ég tilvísun til að koma til augnlæknis?
Þú þarft ekki tilvísun til að koma í almenna augnskoðun og á það við bæði um börn og fullorðna.
En í eftirfarandi tilfellum þurfum við að fá tilvísun senda til okkar:
- Ef um ungt barn er að ræða og ekki talið að hægt sé að bíða í 6 mánuði eftir tíma, getur hjálpað að láta senda tilvísun. Tilvísanir eru metnar og opnaðir eru auka tímar ef þurfa þykir.
- Ef þú óskar eftir að komast á biðlista fyrir augasteinaaðgerð hjá Lentis, þarftu að skila inn tilvísun og á henni þarf að koma fram hvort óskað er eftir að vera innan eða utan sjúkratryggingakerfis. Nánari upplýsingar á lentis.is.
Get ég valið ákveðinn lækni?
Það eru nokkrir læknar hjá okkur sem ekki taka á móti nýjum sjúklingum.
Ef þú ert nýr sjúklingur getur þú fengið tíma hjá eftirfarandi læknum:
- Elva Dögg Jóhannesdóttir - Fullorðnir og börn frá 6 ára
- Rannveig Linda Þórisdóttir - Fullorðnir og börn frá 4 ára
- Sigríður Másdóttir - Fullorðnir og börn frá 4 ára aldri
- Sigríður Þórisdóttir - Eingöngu fullorðnir, sérfræðingur í augnbotnasjúkdómum
- María Soffía Gottfreðsdóttir - tekur eingöngu nýja sjúklinga sem hafa greinda gláku.
- Birna Guðmundsdóttir og Haraldur Sigurðsson - taka eingöngu við nýjum sjúklingum í augnumgjörðaaðgerðir, ekki almenna skoðun.
Hvernig afpanta ég eða breyti tímanum?
Vinsamlegast láttu okkur vita eins fljótt og auðið er ef þú þarft að afbóka eða færa tímann þinn.
Þú getur hringt í okkur í síma 551 8181, sent okkur póst á afbokanir@augn.is eða fyllt út formið Hafa samband
Skrópgjald er kr. 8.000 ef þú mætir ekki í tíma og hefur ekki boðað forföll.
Hvað kostar að fara til augnlæknis?
Augnlæknar Reykjavíkur hafa þjónustusamning við Sjúkratryggingar Íslands og fer það eftir stöðu þinni hjá þeim, hversu hár reikningurinn verður.
Sumir greiða ekkert á meðan aðrir bera sjálfir mestan kostnað.
Greiðsluþak vegna heilbrigðisþjónustu
Kerfið reiknast út frá hlaupandi 12 mánaða tímabili sem hefst þegar þú greiðir fyrsta gjald.
- Hvernig það virkar: Í hverjum mánuði átt þú ákveðið hámarksgjald (greiðslumark). Þegar þú nærð því marki innan mánaðarins, þarftu ekki að borga meira fyrir þá þjónustu sem eftir lifir af þeim mánuði.
- Uppsöfnun réttinda: Allar greiðslur þínar safnast upp yfir 12 mánuði. Eftir því sem þú greiðir meira yfir árið, lækkar mánaðarlega greiðslumarkið þitt jafnt og þétt uns þú greiðir nánast ekkert fyrir þjónustuna.
- Greiðsluhópar: Einstaklingar skiptast í tvo flokka sem ákvarða hámarksgreiðslur:
- Almennir notendur: Borga hærra hámarksgjald á mánuði í upphafi tímabils.
- Afsláttarhópar (aldraðir og öryrkjar): Borga mun lægra hámarksgjald og ná fullri niðurgreiðslu mun fyrr. Börn undir 18 ára greiða ekkert.
Hér er listi yfir algengustu gjaldaliði sem Sjúkratryggingar Íslands taka þátt í að greiða:
- Viðtal og skoðun augnlæknis með sérgreindum rannsóknum/aðgerðum
- kr. 12.780 - Viðtal og skoðun augnlæknis án sérgreindra rannsókna/aðgerða
- kr. 14.300 - Refractionsmæling
- kr. 5.720 - Augnbotnamyndataka og smásjárskoðun á augnbotni
- kr. 14.300 - Sjónsviðspróf með tækjum
- kr. 14.300 - Ytri augnmyndataka
- kr. 7.150 - OCT sneiðmyndataka hjá augnlækni
- kr. 18.590 (ekki ) - Samhæfispróf
- kr. 5.005
Hver er munurinn á Lentis og Augnlæknum Reykjavíkur?
Hér í húsnæði okkar í Hamrahlíð 17 höfum við opnað skurðstofu þar sem augnlæknar okkar Davíð Þór Bragason og Keith Warren Fogg framkvæma augasteinaskipti, undir merkjum Lentis.
Heimasíða þeirra er í vinnslu en hægt er að setja sig í samband við Lentis í síma 539 2030 eða senda þeim póst á lentis@lentis.is






