Aðgerðir á augnumgjörð
Skurðaðgerðir á augnlokum, augntótt og táragöngum.

Augnumgjarðaaðgerðir (á ensku oculoplastic surgery) er sérhæft svið innan augnlækninga og lýtalækninga sem snýr að greiningu og skurðmeðferð á líffærunum í kringum augað: augnlokum, augntótt og táragöngum. Þessar aðgerðir geta verið gerðar af læknisfræðilegum ástæðum (til að bæta sjón eða laga sjúkdóma) eða vegna útlitslegra ástæðna sem hafa áhrif á virkni augans.
Hjá okkur starfa afar reynslumiklir augnskurðlæknar sem framkvæma slíkar aðgerðir á Handlæknastöðinni, eftir forskoðun og mat hér á stofunni hjá okkur.
Sjá nánar í fræðslugrein: Augnumgjarðaaðgerðir


