Hoppa beint í aðalinnihald
Augnlæknar Reykjavíkur
Þjónusta

Augnbotna eftirlit og meðferð

Augnbotnasjúkdómar er samheiti yfir sjúkdóma og hrörnunarbreytingar sem leggjast á sjónhimnuna (retina) og gula blettinn (macula) aftast í auganu.

Augnbotnasjúkdómar er samheiti yfir sjúkdóma og hrörnunarbreytingar sem leggjast á sjónhimnuna (retina) og gula blettinn (macula) aftast í auganu.

Þessir sjúkdómar hafa oftast áhrif á miðjusjónina og sjónskerpu, það er lestrarsjónina og hæfileikann til að sjá smáatriði skýrt, en geta í sumum tilfellum ógnað sjóninni alvarlega ef ekkert er að gert.

Hér eru algengustu gerðir augnbotnasjúkdóma

  • Aldursbundin augnbotnahrörnun (AMD): Þetta er algengasta orsök alvarlegrar sjónskerðingar og lögblindu á Íslandi hjá fólki yfir fimmtugu.
    Sjá nánar fræðslugrein: Aldursbundin augnbotnahrörnun (AMD)
  • Sykursýkisbreytingar í augnbotnum (Diabetic Retinopathy): Fólk með sykursýki getur fengið skemmdir á fínum háræðum í augnbotnunum.
    Sjá nánar fræðslugrein: Sykursýkistengdar augnbotnabreytingar
  • Blóðtappi í auga (Retinal Vein/Artery Occlusion): Stífla í æðum augnbotnsins sem veldur skyndilegri og sársaukalausri sjónskerðingu.
    Sjá nánar fræðslugrein: Blóðtappi í auga
  • Sjónhimnulos (Retinal Detachment): Þegar sjónhimnan losnar frá undirlagi sínu aftast í auganu. Þetta er bráðatilfelli sem krefst tafarlausrar skurðaðgerðar.
    Sjá nánar fræðslugrein: Sjónhimnulos

Sérfræðingar okkar greina með hjálp fullkomnustu tækjakosta, sjúkdóma og hrörnun í augnbotnum. Þeir fylgja sjúklingum eftir og veita meðferð með lyfjum, leysigeislum eða skurðaðgerðum eftir því sem það á við.

  • Við notum OCT myndavél af fullkomnustu gerð, sem tekur nákvæmar myndir af augnbotnum og OCT sneiðmyndir (Optical Coherence Tomography) - niðurstöður gefur góða mynd ástandi augnbotna og sjóntaugar.

Tengdar greinar