Hoppa beint í aðalinnihald
Augnlæknar Reykjavíkur
Þjónusta

Almennar augnskoðanir

Í almennri augnskoðun metur augnlæknir bæði sjónina og líffærafræðilegt heilbrigði augnanna til að greina sjóngalla eða augnsjúkdóma sem oft eru einkennalausir á frumstigi.


Skoðunin skiptist yfirleitt í eftirfarandi meginþætti:

  • Forsaga og einkenni: Farið er yfir almenna heilsusögu, lyfjanotkun, ættarsögu um augnsjúkdóma (t.d. gláku eða aldurstengda hrörnun) og hvort þú finnir fyrir breytingum á sjón eða óþægindum.
  • Sjónpróf og sjónskerpa: Lesið er af stöfum eða táknum á sjónprófi (oft Snellen-töflu) til að mæla sjónskerpu bæði með og án leiðréttingar (gleraugna eða linsa).
  • Augnþrýstingsmæling: Þrýstingur innan augans er mældur til að athuga með vísbendingar um gláku.
  • Raufarlampaskoðun (Slit lamp): Notast er við sérstaka smásjá með mjórri ljósgeisla til að skoða ytra og fremra byrði augans í mikilli stækkun, svo sem:
    • Augnlok og táraganga
    • Hornhimnu (cornea) og slímhimnu (conjunctiva)
    • Augastein (athugað með ský á augasteini / drer)
  • Skoðun á sjónhimnu og sjóntaug:
    • Oft eru settir víkkunardropar í augun til að opna sjáaldrið (pupil).
    • Læknirinn notar sérstök ljós og linsur til að skoða aftari hluta augans: sjónhimnu (retina), gulan blett (macula), sjóntaug, glerhlaup og æðakerfi augans.
  • Viðbótar mælingar (ef þörf krefur):
    • Augnbotnamyndataka
    • OCT sneiðmynd
    • Sjónsviðspróf

Tengdar greinar