Gláku eftirlit og meðferð
Greining og meðferð við gláku með lyfjum, leysigeislum og skurðaðgerðum.

Gláka er sjúkdómur sem skemmir sjóntaugina og getur valdið varanlegri sjónskerðingu eða blindu ef hún er ekki greind og meðhöndluð. Einkenni eru oft engin fyrr en sjúkdómurinn er kominn vel á veg.
Allir okkar sérfræðingar geta greint gláku á byrjunarstigi með hjálp fullkomnustu tækja sem völ er á, á sviði augnlækninga:
- Sjónsviðsmælingartæki mælir sjónsvið - en skuggar á sjónsviði er eitt af byrjunareinkennum gláku.
- OCT myndavél sem tekur nákvæmar myndir af augnbotnum og OCT sneiðmyndir (Optical Coherence Tomography) - niðurstöður gefur góða mynd ástandi augnbotna og sjóntaugar.
- Augnþrýstingsmælar.
Hjá okkur starfa jafnframt glákusérfræðingar sem hafa eftirlit með sjúklingum sem hafa greinda gláku og veita lyfjameðferð, laseraðgerðir og skurðaðgerðir, eftir því sem við á. Hjá Augnlæknum Reykjavíkur eru í notkun fullkomin lasertæki sem nýtt eru við meðferð á gláku en skurðaðgerðir eru framkvæmdar á Landspítala.
Tengdar greinar
Gláka
Lesa meiraGláka er sjúkdómur sem skemmir sjóntaugina og getur valdið varanlegri sjónskerðingu eða blindu ef hún er ekki greind og meðhöndluð. Einkenni eru oft engin fyrr en sjúkdómurinn er kominn vel á veg.
Augnbotnarannsóknir
Lesa meiraAugnbotnarannsókn (oft nefnd funduscopy eða ophthalmoscopy) er skoðun á innri hluta augans, sérstaklega sjónhimnu (retina), sjóntauginni, sjóndepilli (macula) og þeim örfínu æðum sem næra augað.
Sjónsviðspróf
Lesa meiraSjónsviðspróf er einföld en afar öflug forvarnar- og greiningaraðferð. Með því að fylgjast reglulega með jaðarsjóninni er hægt að grípa snemma inn í breytingar og verja sjónina til framtíðar.