Hoppa beint í aðalinnihald
Augnlæknar Reykjavíkur
Fræðsla

Hvað gera augnlæknar?

Við mælum eindregið með því að leita til sjóntækjafræðings í næstu gleraugnaverslun ef þú þarft að fá nýja gleraugnamælingu.

Störf augnlækna hafa breyrst mikið á síðustu árum

Áður fyrr var það stór hluti af starfi augnlækna að mæla sjón og ávísa gleraugum væri þeirra þörf. Þó að sjónlagsgallar (nærsýni, fjarsýni og sjónskekkja) séu nógu hvimleiðir teljast þeir ekki vera eiginlegir sjúkdómar í augum heldur er um að ræða byggingargalla á auganu eða aldurstengda breytingu á sjón.

Vissulega er mæling á sjón enn hluti af starfi augnlækna en í dag er greining og meðhöndlun augnsjúkdóma orðin mun stærri hluti starfsins. Sem dæmi má nefna sýkingar í augum, augnskekkjur, ský á auga, gláku, aldursbundna rýrnun í augnbotnum, skemmdir í augnbotnum af völdum sykursýki og sjúkdóma í heila sem hafa áhrif á sjón.

Með hækkandi meðalaldri þjóðarinnar fer tíðni aldursbundinna sjúkdóma vaxandi og hratt vaxandi tíðni sykursýki veldur einnig vissum áhyggjum. Mælt er með að allir sem haldnir eru sykursýki fari reglulega í augnskoðun. Tilgangur eftirlitsins er að greina sykursýkisskemmdir í augnbotnum áður en þær ná að skaða sjón og meðhöndla þær t.d. með leysigeislum eða lyfjum. Með því móti má draga mikið úr sjónskerðingu og blindu af völdum sykursýki.

  • Mynd 1
  • Mynd 2
  • Mynd 3
  • Mynd 5
  • Mynd 6
  • Mynd 7